Icelandair IS - January 2008 - (Page 10) 10 www.icelandair.is Flugáætlun: Flogið 5 sinnum í viku yfir sumartímann en allt að 4 sinnum í viku yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 23.360 kr. *Á mann í tvíbýli á Bond Place Hotel Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Mín Toronto Sigrún Stella Haraldsdóttir, söngkona og nemandi í University of Toronto. Bloor. Eftir það er gott að fá sér drykk á Hyatt hótelinu, hinum megin við götuna. Þar er bar á efstu hæðinni með fallegu útsýni yfir borgina, sérstaklega á kvöldin. 3 University of Toronto Stórfenglegt háskólasvæði, gaman að rölta þarna um, mjög áhugaverðar byggingar og garðar í kring. 4 Yorkville Mér finnst gaman að rölta um í Yorkville sem er heldur fínt hverfi. Það er skylda að setjast á klettinn á móti Hemingways og drekka „café latte“. Veitingastaðir, barir og búðir allt í kring. 5 Kengsington Market Þetta er frægasti markaðurinn í Toronto. Frábærar fatabúðir með notuðum fötum, mat og mörgu fleira. „Rjúkandi retró- og hippastemning.“ Gaman að rölta þar um og fá sér mat á Jumbo empanada. 6 Toronto Island Frábært og nauðsynlegt að fara á góðum sumardegi á Eyjuna með ferjunni frá Harbourfront bryggju. Þar er hægt að 1 Queen Street Á gatnamótunum Queen St. og University er Óperuhús. Vestar á Queen St. eru margar búðir, skemmtileg kaffihús og veitingastaðir og enn vestar á Queen St. eru mörg gallerí. Svo er gott að stoppa og fá sér kaffi á Clafouti kaffihúsinu og sitja í Trinity Bellwoods garðinum sem er á móti. Góð bókabúð rétt hjá sem heitir Type. 2 The Royal Ontario Museum (The Rom) Romið er frægasta safnið í Toronto. Tilvalið er að fá sér hádegissnarl á Hemingways veitingastaðnum í Yorkville og rölta svo yfir í Romið sem er á gatnamótum University og fara á ströndina og bregða sér í lítið tívolí. Svo er hægt að leigja sér hjól yfir daginn; skemmtilegar hjóla- og gönguleiðir. Oft er eitthvað um að vera á Harbourfront sem hægt er að lesa um í Now Magazine. 7 Distillery District Gamalt verksmiðjuhverfi. Eins og að fara aftur í tímann. Steinlagðar götur. Listalíf, gallerí, „bútíkks“, veitingastaðir og margt fleira. Gott að fara að degi til. 8 Á horninu á College og Clinton (Little Italy) Krúttlegir veitingastaðir, kaffihús, fata-, bóka-og plötubúðir. Frekar „hipp“ hverfi. Gaman að fara þar á kvöldin; mikið líf, einnig skemmtilegir litlir barir allt í kring. Gott að droppa við á Café Diplomatico eða Utopia Cafe og fá sér öl. Flug og gisting í 2 nætur frá 57.900* kr. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.