Icelandair IS - January 2008 - (Page 11) Vildarpunktar Flug til Toronto gefur 2.800–12.800 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. 11 Clafouti kaffihúsið Type bókabúðin Rjúkandi Retró- og hippastemning Setjast á klettinn á móti Hemingways og drekka „café latte“ 1 Drake Hotel, 1150 Queen St West Er líklega vinsælasti staðurinn í Toronto. Mjög flottur veitingastaður sem breytist í skemmtistað þegar lengra líður á kvöldið. Það er einnig hægt að fá sér „bröns“ þar á daginn. Drake þykir rosalega töff staður með „artí“ ívafi. Gef Drake 5 stjörnur! Gott að dressa sig upp. 2 Utopia Café & Grill, 586 College St. Þetta er „töff/kasjúal“ og vinsæll veitingastaður með verönd. Maturinn er á góðu verði og hægt að fá bestu búrrítos í heimi. Einnig í skemmtilegu og lifandi hverfi, sérstaklega á kvöldin. Þægileg þjónusta. 3 La Palette, 256 Augusta Ave. Franskt bístró í Kensington Market. Þekkt fyrir afbragðsgóðan mat og „kósí“ stemmningu. 4 The Swan, 892 Queen St West Frábær veitingastaður með góðri þjónustu og góðum mat. Þar vinnur Tom sem þekkir til allra Íslendinga í Toronto. Endilega spyrjið eftir honum; hann sér vel um ykkur, þekkir borgina vel og getur gefið ykkur góð ráð. 5 The Rivoli, 334 Queen St W Gott er að fá sér kvöldverð á Rivoli, sem er pínu „öppskeil/kasjúal“, og kíkja svo á jazzbarinn á eftir (The Rex,194 Queen St W) sem er rétt hjá. Þar er „læf djass“á hverju kvöldi.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.