Icelandair IS - January 2008 - (Page 13) Vildarpunktar Flug til Halifax gefur 2.800–12.800 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið 3 sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar sinnum í viku, á mánudögum og fimmtudögum, yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 18.560 kr. *Á mann í tvíbýli á hótel Delta Halifax Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. 13 Halifax Flug og gisting í 2 nætur frá 57.900* kr. 1 Privateers Wharf Sjóræningjabakkinn er þyrping gamalla bygginga við höfnina þar sem eru verslanir, veitingastaðir, krár og heillandi andrúmsloft í 19. aldar umhverfi. Kjörinn staður fyrir ógleymanlegir stundir á góðum degi og fallegum kvöldum. 2 Citadel Hill Borgarvirkið á Virkishæðinni fyrir ofan brekkurnar í miðbænum er tákn borgarinnar og minnir á að Halifax varð til sem bresk herstöð. Fínt að skoða sig þarna um í notalegu veðri og hverfa inn í andrúmsloft fyrri alda í Halifax. Í boði eru skoðunarferðir með leiðsögumanni. 3 Casino Nova Scotia Spilavíti, skemmtanahöll og veitingastaðir við höfnina í miðbænum. Staðurinn fyrir fólk sem vill freista gæfunnar við spilaborð, gera vel við sig í mat og drykk eða njóta frábærra skemmtisýninga. 4 Maritime Museum of the Atlantic Sjóminja- og siglingasafn við höfnina. Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á sögu og menningararfleið fólksins sem býr á þessum slóðum. 5 Pier 21 „Bryggja 21“ er 3.700 m² friðaður þjóðmenningarstaður vegna sögulegs gildis, síðasta innflytjendaskýlið sem enn er varðveitt í Kanada. Hér hafa örugglega einhverjir Íslendingar stigið sín fyrstu skref í „Nýja heiminum“ á síðari hluta 19. aldar. 6 Peggy´s Cove Strandbyggðirnar út frá Halifax eru vel þess virði að kynnast þeim í nokkurra klukkustunda dagsferð. Þarna eru notaleg fiskimannaþorp, frábærir sjávarréttastaðir og klettótt og vogskorin strönd. Peggy’s Cove er örlítið sjávarpláss með sjarma frá fyrri tíð, þekktast fyrir ávalar, gular granítklappirnar þar sem úthafsaldan brotnar án afláts. 1 Bish World Cuisine, 1475 Lower Water St, Bishop’s Landing Fínn veitingastaður með alþjóðlegum matseðli og fallegu útsýni yfir höfnina. Gestum býðst að snæða úti á fallegum kvöldum. 2 daMaurizio 1496 Lower Water St, The Brewery Hlýlegur ítalskur veitingastaður sem margir telja einn hinn besta í Halifax. Sérstæð en notaleg innrétting. Góður matur. 3 Economy Shoe Shop, 1663 Argyle St „Skórinn“, eins og Halifaxbúar kalla þennan stað, er bístróstaður sem á sér engan líka. Innréttingar og andrúmsloft eru sér á parti rétt eins og nafnið. Ágætur matur. 4 Il Mercato, 5475 Spring Garden Rd Góður ítalskur veitingastaður sem enginn verður svikinn af að heimsækja.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.