Icelandair IS - January 2008 - (Page 14) 14 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Midtown í Boston. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Naglabúllur á hverju horni Risasápukúlur Shakespeare in the Park Lifandi jass stofnaði á 19. öld. Þarna ægir öllu saman, málverkum, húsgögnum og kirkjumunum, allt frá Rembrandt til arabískra, grískra og rómverskra skrautmuna. 5 New England Aquarium Sædýrasafn þar sem allt iðar af lífi. Þarna eru skötur, hákarlar og fleiri sjávardýrategundir sem synda rétt hjá gestunum. Mörgæsirnar vekja alltaf kátínu. 6 Frog Pond í Boston Common Frog Pond í Boston-Common-garðinum er lítil tjörn þar sem börn baða sig og sulla að vild á sumrin. Að vetrarlagi breytist tjörnin í skautavell með dynjandi tónlist og jólaljós í garðinum skapa skemmtilega vetrarstemmningu. Mín Boston Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur og Þorvarður Jón Löve, læknir. 1 Beacon Hill Við mælum með gönguferð um Beacon-Hillhverfið þar sem gaslýsing og steinlagðar götur setja enn svip á umhverfið. Lítið í búðirnar á Charles Street þar sem eru skemmtilegar antík-, tísku- og húsbúnaðarbúðir auk notalegra veitingastaða. 2 Children‘s Museum 7 Public Garden Public Garden er friðsæll garður í miðborginni þar sem er gott að sitja og lesa eða fylgjast með mannlífinu. Góður dagur byrjar með gönguferð um Beacon Hill og endar svo á einu af kaffihúsum við Newbury Street með viðkomu í garðinum. Flug og gisting í 3 nætur frá 59.900* kr. Safn fyrir börn þar sem þau búa til risasápukúlur, fara í búðarleik og fleira. Í raun á safnið ekkert sameiginlegt með hefðbundnum söfnum, í öllum sýningarsölunum er markmiðið að fá börnin til að leika sér. 3 Shakespeare í Boston Common Shakespeare in the Park leikhópurinn setur upp Shakespeareverk á hverju sumri í Boston Common. Sýningar á hverju kvöldi frá júní fram í miðjan ágúst. Alltaf góð stemning, aðgangur ókeypis og tilvalið að taka með sér nesti og teppi. 4 Isabella Stuart Gardner Museum Hérna komum við aftur og aftur. Yndislegt safn sem kona að nafni Isabella Gardner http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.