Icelandair IS - January 2008 - (Page 15) Vildarpunktar Flug til Boston gefur 2.800–12.800 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið daglega til Boston allt árið og allt að 11 sinnum í viku yfir sumartímann, þar af morgunbrottfarir 4 daga vikunnar. Flugverð aðra leiðina frá 25.430 kr. 15 4 Tamarind Bay, Cambridge Handan við Charles ána er einn besti indverski staður í Bandaríkjunum. Hann er í kjallara nálægt Harvard Square. Tilvalið að sameina skoðunarferð um gamla skólasvæðið og ferð á þennan veitingastað. 5 Awuitaine, South End Uppáhaldsstaðurinn okkar fyrir „brunch“. Þetta er staður sem sækir innblástur í frönsk bístró. Við mælum með Brioche French Toast; sætt og seðjandi. 6 Upper Crust, Beacon Hill 8 Jass á Wally‘s Café Lifandi djass á hverju kvöldi, alla daga, líka á jóladag, frá 21:00 til 02:00. Spilagleðin er ólýsanleg. Barinn er á neðstu hæð í íbúðarhúsnæði og er á stærð við litla stofu í Þingholtunum. 9 Farið í búðir Allar helstu verslunarkeðjurnar eru á öðru hverju horni og hægt að er að finna alls kyns 10 Naglabúllur Naglabúllur þar sem handsnyrting kostar 10–15 dali eru á hverju götuhorni og við mælum með Lauren´s Nails sem er bæði á Charles Street og Newbury Street. sérhæfðar smáverslanir. Öll helstu lúxusmerkin eru á Newbury Street og í Prudential / Copley verslunarmiðstöðinni. 7 Ruth’s Chris Steakhouse, gamli miðbærinn Steikurnar hjá Ruth´s Chris gæla við bragðlaukana. Það eykur á stemmninguna að staðurinn er til húsa í gamla ráðhúsinu í Boston, rétt við fjármálahverfið. Við Charles Street. Sérlega ljúffengar pizzur þar sem leyndarmálið er ferska tómatsósan og þunnur pizzabotn.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.