Icelandair IS - January 2008 - (Page 17) Vildarpunktar Flug til Minneapolis/St. Paul gefur 2.800–12.800 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið daglega yfir sumartímann og allt að 6 sinnum í viku yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 25.430 kr. *Á mann í tvíbýli á Holiday Inn í Minneapolis. Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. 17 Mín Minneapolis Elfa Magnúsdóttir. Flug og gisting í 3 nætur frá 56.900* kr. 1 Uptown Art Fair, Minneapolis Útilistahátíð sem haldin er í byrjun ágúst ár hvert á götum Uptown Minneapolis. Skemmtileg upplifun sem höfðar ekki einungis til listunnenda. 2 Walker Art Center, Minneapolis Líklega eitt áhugaverðasta listasafn landsins, undir berum himni á besta stað í hjarta Minneapolis. 3 Welch Mill Canoeing and Tubing, Welch Ekið í 90 mín. frá Minneapolis. Á þessum stað er hægt að leigja slöngu eða kanó og sigla í eina til fjórar klukkustundir niður fallega á. Frábær afþreying fyrir alla fjölskylduna. Munið að taka með nesti og kælibox. 4 Lake Harriet, Minneapolis Eitt af fimm samtengdum vötnum í borginni með hjóla-, skauta- og göngustígum. Frábær staður til að fara í göngutúr, fá sér ís og slappa af á góðum degi. 5 The Mall of America, Bloomington Stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna. Óteljandi búðir, ógrynni af veitingastöðum, kvikmyndahús, skemmtigarður og margt fleira. 6 Orpheum Theater, Minneapolis Í þessu leikhúsi er hægt að upplifa Broadway sýningu án þess að þurfa að fara til New York. Sögufrægur staður sem býður upp á frábærar leiksýningar allan ársins hring. 7 Uptown, Minneapolis Líflegur og menningarlegur staður með aðlaðandi veitingastöðum og skemmtilegum búðum sem eru frábrugðnar hinum algengu stórverslanakeðjum. Gott kvikmyndahús þar sem oft eru sýndar íslenskar kvikmyndir. Vinsæll staður meðal háskólanema. 8 The Minnesota Renaisance Festival, Shakopee Miðaldahátíð sem haldin er á hverju hausti. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna á daginn og konungleg skemmtun fyrir hina fullorðnu á kvöldin. 9 Como Park Zoo and Conservatory, St. Paul Fallegur dýragarður. Í göngufæri er athyglisverður blómagarður þar sem einn hluti er tileinkaður japönskum gróðri. 2 Outback Steakhouse Steikhús með áströlskum blæ. Heimilislegur staður, gott verð, vingjarlegt starfsfólk og magnaðar steikur. 3 Kincaids Þetta veitingahús er með fínni stöðum í Minnesota. Gott tilefni til að klæða sig upp og fá frábæran mat. 4 Campiello Virðulegur staður með skemmtilegum stíl og góðum ítölskum mat. Góður staður til að fara á eftir erfiðan dag. 1 Perkins Ekta amerískur ,,brunch‘‘ með frábæru úrvali af girnilegum réttum. „Grannies Omlet“ er uppáhaldið. Varist ofát.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.