Icelandair IS - January 2008 - (Page 19) Vildarpunktar Flug til New York gefur 2.800–12.800 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið allt að 9 sinnum í viku til New York yfir sumartímann, þar af morgunbrottfarir 2 daga vikunnar. Yfir vetrartímann verður flogið allt að 6 sinnum í viku. Flugverð aðra leiðina frá 25.430 kr. *Á mann í tvíbýli á Hotel Edison Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. 19 Mín New York Thelma Þormarsdóttir, fyrirsæta. Flug og gisting í 3 nætur frá 67.900* kr. 1 The Rose Bar Flottur bar í Gramercy Park hótelinu, hannaður af listamanninum og kvikmyndaleikstjóranum Julian Schnabel. Nútímalist eftir heimsþekkta listamenn á öllum veggjum, þægilegir sófar, tveggja metra hár arinn og frábær tónlist. 2 The Box Nætuklúbbur í umgjörð lítils leikhúss á The Lower East Side. Sýningar fjögur kvöld í viku. Hvort sem það er tappdansari, fólk í sippuleik, systur í „burlesque“ eða klámstjarna að sýna „listir“ sínar er manni vel skemmt. 3 Central Park New York væri ekki New York án Central Park. Kyrrð fyrir þá sem vilja og uppákomur fyrir hina. Guggenheimsafnið, Museum of Natural History og Moma eru öll í göngufæri. 2 Flóamarkaður 1 Soho Um helgar er upplagt að rölta um Soho. Iðandi mannlíf, langir „brönsar“, fjölbreyttar verslanir og uppákomur. Tveggja metra hár arinn og frábær tónlist Meiriháttar plötu- og bókabúðir Central Park Iðandi mannlíf og langir „brönsar“ 4 Bedford Avenue í Wiliamsburg, Brooklyn Ótrúlega fjölskrúðugt mannlíf og mikið um að vera. Frábær stemning um helgar og sölufólk sem selur allt milli himins og jarðar á hverju götuhorni. Meiriháttar plötu- og bókabúðir og verslanir með notuð föt. Mæli sérstaklega með veitingastaðnum Relish Diner í Williamsburg, 225 Wythe Avenue (www.relish.com). 5 South Street Seaport Þetta hverfi var áður fiskimarkaður en minnir núna helst á torg í evrópskum borgum. Mikið af verslunum og eitt það skemmti-legasta í þessu hverfi er sýningin „Bodies“ (www.bodiestheexhibition.com). Við höfnina er hægt að hoppa um borð í ferju sem siglir í kringum eyjuna. Flóamarkaðurinn á 40. stræti milli 10. og 11. breiðstrætis. Einn stærsti og áhugaverðasti flóamarkaður á Manhattan. Hægt að finna húsgögn, plötur, skart, fatnað og ótalmargt fleira. 3 Comedy Cellar McDougal og West 3rd Street. Kjallari þar sem grínistar skemmta gestum. Stundum frægir gaurar á borð við Chris Rock og Louis CK að prófa nýtt efni og æfa sig fyrir væntanlegar uppistandsferðir. 4 Irving Plaza 15th St og Irving Place. Áhugavert tónleika– hús þar sem eru tónleikar á hverju kvöldi (www.irvingplaza.com). http://www.relish.com http://www.bodiestheexhibition.com http://www.irvingplaza.com
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.