Icelandair IS - January 2008 - (Page 20) 20 www.icelandair.is Orlando: *Á mann í herbergi m.v. 2 fullorðna á Best Western ** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. St. Petersburg: *Á mann í herbergi m.v. 2 fullorðna á Holiday Inn Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting í 8 nætur. Mín Orlando Andrea Björgvinsdóttir, fasteignasali Orlando slóðum þar sem krókódílar eru nokkuð algengir. Sniðugt að leggja að landi við veitingastaðinn, sem er við ána, og fá sér að borða t.d. krókódílakjöt. Hestaferðir með reyndu leiðsögufólki eru líka í boði á hverjum degi. 4 Thornton Park, Lake Eola Thornton Park er rétt austan við Lake Eola sem er í hjarta borgarinnar. Þarna eru margir góðir veitingastaðir sem hafa þann eiginleika að þeir breytast í fjörmiklar krár á kvöldin. Þarna er líka blómlegt viðskiptalíf og verslanir með smávöru að deginum til. 5 Downtown Disney Marketplace, Downtown West Side, Pleasure Island Heimur út af fyrir sig, bær fullur af lífi með einstökum verslunum, veitinga- og skemmtistöðum. Í Downtown Disney Marketplace er heimsins stærsta verslun með vörur úr ævintýraheimi Disney og Legóbúð með leikvelli. Downtown Disney West Side er þekkt fyrir leiksýningar og veitingastaði og Pleasure Island er þekkt fyrir næturklúbba og skemmtisýningar. 6 Daytona Beach Strandlengjan er tæpir 40 kílómetrar af hvítum sandi. Hérna er siður að aka og leggja bílnum 1 Winter Park, Park Avenue Þar er að finna litlar sérverslanir, kaffihús, vínbari og frábær veitingahús. Bændamarkaður á laugardögum frá kl. 7 til 13 þar sem hægt er að kaupa ferskt grænmeti, blóm, brauð, ávexti og hnetur. 2 Winter Park Boat Tour Skemmtilegt er að fara í bátsferð um vötnin í Winter Park. Þar er hægt að sjá glæsilegar villur og höfðingjasetur frá öðrum sjónarhól og njóta hins fallega umhverfis og dýralífsins. 3 Wekiva Springs State Park Hálftíma akstur í norður af miðbæ Orlando þar sem hægt er að leigja sér kajak og sigla niður Wekivaána og njóta sannkallaðrar Floridafegurðar og hins sérstæða dýralífs á þessum 8 Cirque de Soleil Ævintýraleg sýning þessa fræga fjöllistahóps. Skemmtun fyrir alla aldurshópa. Í Downtown Disney West Side. á ströndinni sjálfri en fyrir þá, sem vilja ekki bílaumferð, eru teknir frá 10 kílómetrar. Þeir sem hafa áhuga á kappakstri geta brugðið sér á International Speedway þar sem Daytona 500 er haldin. Í febrúar er mótorhjólavika og mikið um að vera. 7 Edgewater og College Park Þetta eru vinsæl hverfi á meðal ungs fólks í norðurhluta borgarinnar. Hérna eru margar skemmtilegar búðir og antíkverslanir. Á Edgewater Drive eru margir góðir veitingastaðir. 9 Eagle Creek Golf Club Golf Digest gefur honum 4½ stjörnu. Við opnun árið 2003 hlaut hann strax mikið lof og hefur verið í flokki bestu golfvalla Orlando síðan þá. 10 Grand Cypress Resort Golf Club Hérna eru tveir vellir þar sem annar er 18 holu völlur en hinn 27 holu. Stærri völlurinn krefst mikillar nákvæmni en sá minni er hannaður í skoskum stíl. Grand Cypress er í Lake Buena Vista, örstutt frá Disney og Seaworld. 11 Orange County National Golf Center & Lodge Þessi völlur í Winter Garden hefur hlotið frábæra dóma. Orlando Magazine hefur kjörið hann besta völlinn í Orlando. Golf Digest gefur honum 4½ stjörnu. 12 Magnolia Plantation Um 30 mínútna akstur frá miðbæ Orlando. Golf Digest hefur útnefnt þennan völl sem einn af bestu golfvöllum á Orlandosvæðinu á árunum 2006–2007. Flug og gisting í 8 nætur frá 68.900* kr. Bradenton Flug og gisting í 8 nætur frá 71.900* kr. St. Petersburg Flug og gisting í 8 nætur frá 77.900* kr. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.