Icelandair IS - January 2008 - (Page 23) Vildarpunktar Flug til Berlínar gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið 3 sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar sinnum í viku, á fimmtudögum og sunnudögum, yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 16.220 kr. 23 Súkkulaðibúðin Alvöru berlínskar pylsur Sementsvölundarhús Tveggja herbergja bar Borðað í niðamyrkri og matseðillinn er gáta 7 Potsdamer Platz Alltaf jafn magnað að koma á þennan stað þar sem byggingarnar hafa risið upp frá grunni á 20 árum. Þeir sem hafa áhuga á arkítektúr ættu ekki að láta þetta hverfi fram hjá sér fara. 8 Konnopke‘s Imbiss Hér er hægt að fá alvöru berlínskar pylsur: Currywurst eða Bratwurst. Lest: U2, stoppistöð: Eberswalder Strasse. 9 Minnismerki um helförina Minnismerki, hannað af arkítektinum Peter Eisenman. Þetta er eins konar sementsvölundarhús þar sem hægt er að láta hugann reika. 10 Alt Berlin barinn Minnsti barinn í bænum, tveggja herbergja. Hægt að panta þýskan snafs og kjötbollur með súrum gúrkum langt fram á nótt. Lest: U8, stoppustöð: Weinmeisterstrasse. 3 Kuchi, Gipsstrasse 3, Mitte Frábært sushi, skemmtilega borið fram. 2 Monsieur Vuong, Alte Schönhauser Strasse 46, Mitte Víetnamskur staður í hjarta borgarinnar. Fáir réttir, en alltaf ferskt og hressandi. 1 Unsicht-Bar, Gormannstrasse 14, Mitte Maður gleymir því seint að hafa snætt á þessum veitingastað. Hann er rekinn af blindum og gestir borða dýrindismat í kolniðamyrkri. Hér reynir á bragðlaukana því matseðillinn er gáta.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.