Icelandair IS - January 2008 - (Page 24) 24 www.icelandair.is Flugáætlun: Flogið tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og sunnudögum, á tímabilinu 3. júní–14. september. Flugverð aðra leiðina frá 16.220 kr. München Flug og gisting í 2 nætur frá 44.900* kr. 1 Gönguferð um borgina Það er tilvalið að ætla sér góðan tíma til að ganga og skoða sig um í þessari hlýlegu og grænu borg. Hægt að una sér við það eitt að skoða breiðstrætin, torgin, skrúðgarðana, skrautblóm og hrífandi fallegar stórbyggingar. Kaffihús, bjórkrár og veitingastaðir á hverju horni þar sem má hvíla lúna fætur. 2 Deutsches Museum Stærsta safnið í borginni og sagt að taki heila viku að skoða þar allt sem er að finna. Mörg önnur söfn í borginni sem er vel þess virði að heimsækja. 5 Schloss Neuschwanstein Allt í kringum München, í Bæjaralandi norður af Ölpum, eru einstakar náttúruperlur. Takið ykkur dag í að skoða vötnin í Fimmvatnahéraðinu, og upplifið þýskan ævintýraheim í Schloss Neuschwanstein sem Loðvík II. Bæjarakóngur lét reisa og var lokið við árið 1868. 1 Tantris, Johann-Fichte-Str. 7 Einn þekktasti fyrsta klassa staðurinn í München. Sælkerastaður fyrir þá sem vilja njóta hins besta. 2 Shoya, Orlandostrasse 5 3 Neuhauser- og Kaufingerstrasse Þetta er aðalgöngugatan í borginni þar sem eru allar stærstu búðirnar, Kaufhof, Karstadt, H&M, Zara, C&A, Benetton, Esprit o.fl. Fínni búðirnar eru milli Marienplatz og Odeonsplatz. Þeim sem stendur á sama hvað hlutirnir kosta líta inn í merkjabúðir við Theatinerstrasse og Maximilianstrasse. 4 Bratwurst mit Sauerkraut Enginn kemur til München án þess að bragða á „þjóðarrétti“ hinna lífsglöðu og hláturmildu Bæverja, steikpylsu með súrkáli. Viðeigandi að skola þessu niður með hveitibjór, „Weissbier“, og gæla svo við bragðalaukana á eftir með „Apfel Strudel“. Góður japanskur matur á sanngjörnu verði. Hlýlegt andrúmsloft í umhverfi sem minnir á Japan. 3 Jazz Cantina, Steianstr. 83 Vinsæll veitingastaður undir bandarískum áhrifum. Oft er þarna alveg troðið næstum. 4 Hackerhaus, Sendlinger Straße 14 Dæmigerður bæverskur matur í þjóðlegu umhverfi. Vingjarnlegt andrúmsloft og góð þjónusta. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.