Icelandair IS - January 2008 - (Page 25) Vildarpunktar Flug til Frankfurt og München gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. *Á mann í tvíbýli á InterContinental Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Flugáætlun: Flogið 10 sinnum í viku yfir sumartímann og allt að 6 sinnum í viku yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 14.780 kr. 25 Mín Frankfurt Svala Arnardóttir. 1 Da Vincenco, Bolangarostrasse, Höchst Ítalskur staður. Eigandinn Catello þekkir sína gesti og hefur lag á að láta fólki líða vel. Tilgerðarlaust, sjarmerandi viðmót ásamt góðum og einföldum mat sem ekki er skorinn við nögl. 2 Kanonensteppel, Textorstrasse, Sachsenhausen Vilji maður fá góðan þýskan mat og renna honum niður með ekta Frankfurtar eplavíni þá er Kanonensteppel staðurinn. Líflegur staður sem er mest sóttur af heimamönnum. 3 Vapiano við Goetheplatz Ferskasti ítalski maturinn í Frankfurt er í boði á Vapiano. Þar er svo hátt til lofts og vítt til veggja að staðurinn minnir helst á opið torg. 4 Alte Oper við Opernplatz Í Óperunni, einni af fallegustu byggingum borgarinnar, er einn albesti og glæsilegasti veitingastaðurinn í Frankfurt. Restaurant Opera er talinn vera einn af tíu bestu veitingastöðum í Þýskalandi. Flug og gisting í 2 nætur frá 44.900* kr. 1 Liebfrauenkirche við Liebfrauenberg Falleg, gotnesk kirkja frá því um 1400, í hjarta borgarinnar við göngugötuna sem tengir verslunargötuna Zeil við Römertorgið. 2 Cafe Liebfrauenberg Skammt frá Liebfrauenkirkjunni, eitt af elstu kaffihúsunum í Frankfurt. 3 Römerplatz Torgið er hjartað í gömlu Frankfurt en húsin við það voru gjöreyðilögð í stríðinu. Þau voru svo flest endurreist í sinni upprunalegu mynd og endurspegla mektartíma embættis- og kaupmanna á öldum áður. Við Römertorgið er árlega haldinn einn glæsilegasti jólamarkaður í Þýskalandi. 4 Maintower Fyrir þá sem hafa gaman af að fara upp í háhýsi til að sjá yfir er hægt að fara upp í bankabygginguna Maintower. 5 Goethe Haus Frankfurt er fæðingarborg þýska skáldjöfursins Goethes. Í miðborginni við Grosser Hirschgraben stendur húsið sem hann fæddist í. Húsið er nú safn sem er ekki bara athyglisvert heldur líka þægilegt að skoða. 6 Städel safnið Eitt besta myndlistarsafnið í Þýskalandi. 7 Sachsenhausen Eitt af mínum uppáhaldshverfum. Þar er allt fullt af litlum, skemmtilegum búðum og sægur af forvitnilegum krám, klúbbum og veitingahúsum. Það er tilvalið að eyða kvöldstund í Sachsenhausen. 8 Palmengarten Pálmagarðurinn er alveg kjörinn fyrir þá sem vilja stytta smáfólkinu stundir. 9 Goethestrasse Ein frægasta verslunargatan í Frankfurt. Þarna er öll merkjavaran, glæsilegt úrval af fatnaði og skóm sem tekur líka vel í pyngjuna. 10 Höchst Hverfi vestast í vesturbænum. Fallegur og notalegur gamall bær sem hefur varðveist óskaddaður. Hér er Justinusarkirkjan, ein af elstu kirkjum Þýskalands, og hér eru líka tvær fallegar hallir, Höchster Schloss og Bolangaro-Palast. Römerplatz er hjartað í gömlu Frankfurt Góður, þýskur matur og ekta eplavín Skemmtilegar búðir og sægur af krám
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.