Icelandair IS - January 2008 - (Page 28) 28 www.icelandair.is *Verð frá á mann í tvíbýli á Moevenpick Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Mín Amsterdam Hugleikur Dagsson, rithöfundur og listamaður og Hrafnhildur Halldórsdóttir, nemi Flug og gisting í 3 nætur frá 55.900* kr. 1 Rijksmuseum Ef fólk vill finna lyktina af Rembrandt, þá kemur það hingað. 2 Albert Kuyp Markaðurinn Ferskur fiskur og framandi krydd. Dásamleg stemning í sól og blíðu. 3 Jordan Litlu „9” göturnar í Jordanhverfinu. Eitt elsta hverfið í Amsterdam. Hér eru allskonar litlar hönnunar- og listabúðir. En demantur hverfisins er tannburstabúðin þar sem eru til sölu allir þeir tannburstar sem hægt er að ímynda sér. 4 Bookie Wookie Hálf-íslensk bókverkabúð í Jordanhverfinu, full af flettandi fágætum. Auk þess eru allskyns listauppákomur reglulega. 5 At he movies Elsta bíó í Hollandi, á Harlemerstraat. Sýnir ekki bara þessar dæmigerðu evrópsku „költ-myndir“ heldur líka eðal „Hollywoodmainstreammyndir“. Yfirbragð frá fjórða áratugnum og veitingahús. Hér er hægt að fara á alvöru „deit“. 6 Nordemarkt Dásamlegur markaður á mánudagsmorgnum og um helgar. Hægt að kaupa ódýr efni og lífrænt grænmeti ásamt ýmsu skrítnu, gömlu dóti. 7 Hnetubarinn Þetta er venjulegur og huggulegur bar fyrir utan þá staðreynd að gólfið og borðin eru þakin hnetuskurnum. 8 Gollem Lítill bar í hjarta borgarinnar þar sem fáanlegar eru um fjögurhundruð milljón þúsund tegundir af bjór. Eða svo. 9 Laura Dols Frábær búð með notuðu dóti á Wolvenstraat. Endalaust úrval af skarti, skóm og fatnaði … og líka á góðu verði! Tilvalið fyrir tjúttið. 10 Overtoom 301 Bar sem rekinn er af hústökufólki. Lítill gróði. Barinn er í bakgarði og nauðsynlegt er að hvísla í forgarðinum. Þar spila tónlistarmenn alls staðar að úr heiminum og listamenn fá að stíga sín fyrstu skref. Kvikmyndasýningar af og til. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.