Icelandair IS - January 2008 - (Page 3) www.icelandair.is 3 Millilandaflug frá Akureyri Þrisvar í viku frá 24. maí til 5. sept. til allra áfangastaða Icelandair í Evrópu og New York og Boston. Þú bókar einfaldlega flugið alla leið á www.icelandair.is og velur þar Akureyri sem brottfararstað. – Einfalt, fljótlegt og þægilegt. Norðlendingar kunnu vel að meta þá nýjung í fyrrasumar að geta innritað sig í millilandaflug á Akureyrarflugvelli. Icelandair í samvinnu við Flugfélag Íslands býður því þessa þjónustu aftur í sumar. Farþegar fara í innritun og tollskoðun á Akureyri, fljúga þaðan beint til Keflavíkurflugvallar og koma inn í Leifsstöð sem millilandafarþegar. Brottför Flogið er frá Akureyri á mánudags-, fimmtudags- og föstudagsmorgnum kl. 5:50 og lent í Keflavík kl. 6:40 eða skömmu fyrir brottfarir Icelandair til áfangastaða í Evrópu. Morgunflugið frá Akureyri tengist einnig við nýja brottfarartíma á flugi Icelandair til New York og Boston, en þangað verður flogið kl. 10:30 yfir sumartímann. Hægt er að bóka pakkaferðir á icelandair.is/pakkaferdir Það er bæði einfalt og fljótlegt að bóka pakkaferð á icelandair.is. Fyrst er að velja áfangastað, brottför og heimkomu, og síðan er gengið frá greiðslu. Rafrænu miðarnir eru svo sendir til baka með tölvupósti. Verðdæmi í bæklingnum eru miðuð við að bókað sé á netinu en þjónustugjald bætist við verðið þegar bókað er hjá sölumanni. Sjá dæmi um spennandi sérferðir á bls. 52–53. Kynntu þér spennandi pakkaferðir á www.icelandair.is/pakkaferdir og almenna skilmála Icelandair á www.icelandair.is/ skilmalar Heimkoma Þegar farþegar til Akureyrar lenda síðdegis á Keflavíkurflugvelli þurfa þeir ekki að hafa neitt umstang í kringum farangur í Leifsstöð, þar sem farangurinn er innritaður alla leið á áfangastað. Fólk fær svo farangur sinn á Akureyri og fer þar í gegnum tollskoðun. Brottför frá Keflavík er kl. 18:00 og lent er á Akureyrarflugvelli kl. 18:50. Icelandair áskilur sér rétt til að leiðrétta villur sem kunna að leynast í bæklingnum eða gera breytingar á flugáætlun og verði. Gengi miðast við 12. janúar 2008. Almennir ferðaskilmálar gilda. Sjá www.icelandair.is/skilmalar Vildarkort http://www.icelandair.is http://www.icelandair.is http://icelandair.is/pakkaferdir http://icelandair.is http://www.icelandair.is/skilmalar http://www.icelandair.is/pakkaferdir http://www.icelandair.is/skilmalar http://www.icelandair.is/skilmalar
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.