Icelandair IS - January 2008 - (Page 31) Vildarpunktar Flug til Madrid gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið á laugardögum í sumar, 26. júlí –30. ágúst. Flugverð aðra leiðina frá 22.720 kr. 31 Mín Madrid Hildur Eir Jónsdótir, löggiltur endurskoðandi 1 Gumbo, Calle Pez 15 Bandarískur matseðill með rætur í New Orleans. Líflegur staður þar sem má njóta 1 Retro-lystigarðurinn Einn unaðslegasti bletturinn í borginni. Enginn getur með góðri samvisku sagst hafa komið til Madrid fyrr en hann hefur séð brúðuleikhús við stöðuvatnið, gefið öndunum við glerhöllina eða farið á sýningar í Casa de Vaca. 2 Listasöfnin Prado er þeirra þekktast og jafnframt eitt merkasta safn Evrópu, Thyssen, sem er einkasafn, sýnir fyrst og fremst verk impressionista, og Reina Sofia er nútímalistasafn. Þessi þrjú söfn eru í aðeins 500 metra fjarlægð hvert frá öðru. 5 Plaza del Sol 3 Fuencarral Fyrir kaupglaða Íslendinga er óhætt að mæla með Fuencarral-götunni. Upplagt að nota tækifærið og labba um götur Chueca og fá sér kaffi. Annars má líka bara skella sér beint til Brynju X. í Karen Millen búðina (c/Jorge Juan). 4 Plaza Mayor og Plaza de Oriente Í miðbænum er ýmislegt að sjá, meðal annars torgin Plaza Mayor og Plaza de Oriente. Huggulegt að fá sér hressingu á Café Opera, beint á móti konungshöllinni, en það kaffihús hefur haldist óbreytt í áratugi. Jafnvel lítill þröstur sem tók sér bólfestu í kaffihúsinu fyrir fjölda ára er þar enn og eldist ekkert. 7 69 Petalos Þeir sem vilja taka sporið ættu að skreppa og dansa um helgar á 69 Rósablöðum (69 Petalos c/Alberto Alcocer), þó ekki sé mælt með því að mæta þangað fyrr en um tvö. 6 Santa Ana Ef menn vilja upplifa rólegt fimmtudagsrölt er upplagt að leggja leið sína á bjórstaðina á Santa Ana torginu (sumir eru svo gamlir að það er jafnvel hægt að fá að skoða bruggsöfn í kjöllurunum) og á djasstónleika á litlum krám allt í kring um torgið. Annað torg sem kjörið er að rölta um. Á efri hæð kaffihússins Café Mallorca er notalegt að sötra kaffi og gæða sér á Napolitanakökunum sem eru hreinasta lostæti. 4 El Chaflan, Avenida Pio XII 34 Fyrsta flokks veitingastaður, spánskur matseðill. Þykir með bestu veitingastöðum í Madrid og státar af einni Michelinstjörnu. (Lestarstöð; Pio XII) lífsins yfir góðum mat. (Lestarstöð: Noviciado) 2 Zubia, Calle Espronceda 28 Basknesk matseld eins hún gerist best og verðið sanngjarnt. Vinsæll veitingastaður. (Lestarstöð: Rios Rosas, Nuevos Ministerios) 3 Can Punyetes, Calle San Agustin 9 Katalónskur bístró, kjörstaður þeirra sem kunna að meta grillaða rétti og njóta þess að finna steikarilm í nösum. (Lestarstöð; Anton Martin.) Lítill þröstur sem eldist ekkert Brúðuleikhús við stöðuvatn Napolitanakökur Djass á litlum krám Kampavínsbröns
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.