Icelandair IS - January 2008 - (Page 35) Vildarpunktar Flug til Barcelona gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið verður á laugardögum frá 7. júní og á miðvikudögum og laugardögum frá 16. júlí–11. október. Flugverð aðra leiðina frá 17.420 kr. 35 Karfa með góðgæti og nokkrir gamlir menn sem sitja og skrafa Sólbaðsströnd inni í miðri borg 1 Cervecera Catalana, Mallorca, 236 (á horninu á Rambla de Catalunya) Góður, vinsæll og alls ekki dýr tapasstaður. Hér þarf að panta borð ef fólk vill ekki bíða lengi eða bara borða standandi á barnum. 2 Vinya Roel, Villaroel 190–192 Veitingastaður inni í vínbúð, í fínni kantinum og býður fjölbreyttan matseðil og úrvalsvín á 5 Barceloneta Barcelona er ein af fáum stórborgum þar sem hægt er að fara á sólbaðsströnd inni í miðri borg. Ein ströndin er við Barcelonetahverfið. Þar eru líka fínir veitingastaðir í nágrenninu. 6 Sitges Strandbær rétt sunnan við Barcelona. Lestarferðin tekur hálftíma. Falleg sólarströnd og skemmtilegur, gamall miðbær. Mikið af góðum veitingastöðum og fallegum byggingum. góðu verði. 3 Sagardi, Argentería 62 Skemmtilegur tapasbar í Bornhverfinu þar sem fólk gengur um barinn, velur sér hvern pinnamatinn á fætur öðrum og borgar svo fyrir pinnana í lokin. 4 El Asadar de Aranda, Avinguda del Tibidabo 31 Í glæsilegu húsi á leiðinni upp í Tibidabo, staður sem sérhæfir sig í lambakjöti. Aðalsmerki staðarins er unglamb, grillað yfir viðarkolum.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.