Icelandair IS - January 2008 - (Page 36) 36 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Park Inn Hyde Park Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Mín London Heiða Rún Sigurðardóttir, leiklistarnemi. 1 Carnaby Street Þetta er æðislega krúttleg verslunargata. Þarna byrjar Sohohverfið sem er ansi skrautlegt. 2 Hyde Park Það er æðislegt að koma hingað í góðu veðri og slappa af. Garðurinn er risastór og má komast inn í hann frá mörgum mismunandi stöðum. 3 National Gallery Mér finnst gaman að fara á Trafalgar Square og slappa af á torginu eða fara inn á listasafnið sem er eitt stærsta og vinsælasta myndlistarsafn í London. 4 Brick Lane Mér finnst rosalega gaman að fara á Brick Lane til að versla, borða eða skemmta mér. Brick Lane er í Austur-London, mjög vinsæll borgarhluti núna og mikið lista- og menningarlíf. Brick Lane Market er líka á laugardögum og Spitalfields Market (Commercial Street E1 6BG) er þar rétt hjá. Í Austur-London er líka skemmtilegast að kaupa gamaldags föt og þar eru stærstu búðirnar á Bretlandi með þess háttar fatnað. 5 Covent Garden Mér finnst mjög gaman að fara í Covent Garden og skoða mig um. Uppáhaldið mitt er að fara á Covent Garden Market, niður á Vínbarinn, fá mér vínglas og hlusta á ljúfa tóna frá óperusöngvara og fiðluleikara. 6 Leicester Square Leicester Square er miðpunktur West End leikhúsasvæðisins og allt þar í kring eru helstu Flug og gisting í 3 nætur frá 44.900* kr. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.