Icelandair IS - January 2008 - (Page 37) Vildarpunktar Flug til London gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið tvisvar sinnum á dag, kvölds og morgna, allt árið um kring. Flugverð aðra leiðina frá 14.720 kr. 37 1 Ping Pong Ping Pong er kínverskur „dim sum“ staður með alveg ótrúlega girnilega rétti. Ég panta mér líka alltaf jasmínte þar sem þeir setja lokað jasmínblóm í glasið sem springur síðan út í heita vatninu. Það eru til margir Ping Pong staðir en þeir sem eru mest miðsvæðis eru á Goodge Street (nálægt Goodge Street Station) og á 45 Great Malborough Street (nálægt Oxford Circus Station). 2 Brick Lane leikhús borgarinnar með vinsælustu leiksýningarnar og söngleikina. Shaftesbury Avenue er aðalleikhúsgatan. Svo er gaman að fá sér ís á torginu. 7 Thames Uppáhaldið mitt í London er að fá mér göngutúr við ána Thames. Það er yndislegt að labba frá Embankment neðanjarðarlestarstöðinni og yfir brúna á Suðurbakkann þar sem Þjóðleikhúsið er og Tate Modern listasafnið og Shakespeare´s Globe Theatre sem er eitt merkilegasta leikhús sem ég hef farið í. 8 Notting Hill Notting Hill er fallegt hverfi sem gaman er að ganga um og sérstaklega að fara á Portobello-markaðinn á Portobello Road á laugardögum. Það er krúttlegasta bakarí sem ég hef nokkuð tíma komið í á Portobello Road. Það heitir The Hummingbird Bakery og þar eru bakaðar bestu muffins sem ég hef smakkað. 9 Camden Market Camden-markaðurinn er stór og fjölbreytilegur. Hann dreifist yfir allt Camden High Street og þar er hægt að finna næstum allt sem maður getur ímyndað sér. Þetta er uppáhalds markaðurinn minn og hvert sinn sem ég fer uppgötva ég eitthvað nýtt og spennandi. Markaðurinn er opinn um helgar. 4 Mango Tree Mango Tree er tælenskur og í fínni og kannski svolítið dýrari kantinum. En ef tilefnið er sérstakt er gaman að fara aðeins flottara út að borða en vanalega. Mango Tree er á 46, Grosvenor Place SW1. Alls staðar á Brick Lane eru bestu indversku veitingastaðirnir í London. Þeir eru í röð við götuna og mér finnst gaman að velja nýjan stað í hvert skipti sem ég fer. 3 57 Losteria Losteria er pínulítill ítalskur veitingastaður í hverfinu mínu. Hann er ekta ítalskur og mjög ódýr miðað við gæði. Þetta er uppáhalds rómantíski veitingastaðurinn minn. Hann er á 57, Grays Inn Road WC1. Miðpunktur West End leikhússvæðisins Brick Lane Market á laugardögum Hlusta á ljúfa tóna á Vínbarnum Krúttlegasta bakaríið
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.