Icelandair IS - January 2008 - (Page 38) 38 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Thistle Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Flugáætlun: Flogið allt árið til Manchester tvisvar sinnum í viku, á mánudögum og föstudögum. Flugverð aðra leiðina frá 14.780 kr. Manchester Flug og gisting í 3 nætur frá 42.900* kr. 1 Chaophraya, 15–17 Chapel Walks Frábær tælenskur veitingastaður; bar á neðri hæðinni. Sumir segja að þetta sé besti veitingastaðurinn í Manchester. Ráðlegt að panta um helgar. 2 Akbars, 73 Liverpool Road, Castlefield Indverskur staður í dýrari kantinum. Samt ekki dýrari en svo að þar er alltaf fullt af fólki. 3 The Modern, Urbis, Cathedral Gardens Nýr, fyrsta flokks breskur veitingastaður á 6. og 7. hæð í Urbis-byggingunni. Staðurinn þykir í fínni kantinum en verðið á matnum er sanngjarnt. 4 Choice, Castle Quay, Castlefield Úrvalsveitingastaður og píanóbar sem hefur hlotið margs konar viðurkenningar. 1 Northern Quarter Fullt af vinsælum börum og krám og litlum verslunum. Frjálslegt mannlíf þar sem fólk getur notið sín eins og það er. Gamlar verksmiðjubyggingar í nýjum búningi. Á fáum stöðum í Evrópu eru jafnmargar verslanir með geisladiska og viníl. 2 China town Litríkt hverfi þar sem ótal margt minnir á Kína. Hægt að kaupa kínverskan mat og gjafavöru, ótal kínverskir matsölustaðir og kínverskt nýlistasafn, „The Chinese Art Centre“. 3 Canal Street Þetta er hverfi sem flestir Bretar kannast við. Menning samkynhneigðra setur hér svip sinn á margt og hérna má finna urmul af skemmtistöðum, veitingahúsum, börum og búðum. Veröld sem er þægilega öðruvísi. 4 Old Trafford Heimavöllur Manchester United, „Draumasviðið” sem rúmar 76.000 áhorfendur. Það er vel þess virði að fara að skoða völlinn og ógleymanlegt að vera þar á fótboltaleik. 7 Lake District – Vatnahéraðið Vatnahéraðið er undurfallegt, töfraveröld sem hefur orðið mörgum listamönnum innblástur að ódauðlegum verkum. Lake Windermere er lengsta stöðuvatn í Englandi og á bökkum þess er sjálfsagt að skoða staði eins og heimili Beatrix Potter, hins heimskunna barnabókahöfundar og forgöngumanns í umhverfisverndarmálum, Sizergh kastala og Levens Hall. Vatnahéraðið er jafnframt kjörinn vettvangur til göngu- og hjólaferða. Ökutími frá Manchester er u.þ.b. 1½ klst. 6 Liverpool Sjálfsagt að bregða sér yfir í „bítlaborgina“ þegar dvalist er í Manchester. Þarna er margt að skoða og ekki bara söguslóðir Bítlanna þó að þær séu að sjálfsögðu eitt helsta aðdráttaraflið á ferðamenn. Í ár er Liverpool á meðal „menningarhöfuðborga Evrópu“ og óvenju mikið um að vera í borginni. 5 Trafford Centre Risastór verslunar- og afþreyingarmiðstöð í suðvestur Manchester þar sem hægt er að una sér allan daginn og langt fram á kvöld. Þarna eru undir einu glerþaki 230 verslanir, 55 veitingastaðir, kaffihús og krár, 20 kvikmyndasalir og ýmsir aðrir skemmtistaðir sem eru opnir fram til miðnættis. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.