Icelandair IS - January 2008 - (Page 39) Vildarpunktar Flug til Manchester og Glasgow gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið allt árið um kring til Glasgow á fimmtudögum og sunnudögum, en frá 3. júní verður að auki flogið á þriðjudögum. Flugverð aðra leiðina frá 12.820 kr. *Á mann í tvíbýli á Jurys Inn Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. 39 6 Ruthven Lane Skemmtilegt lítið port með nokkrum litlum búðum sem selja ýmis konar varning frá fyrri 1 The Botanic Gardens Lítill almenningsgarður með gömlum og fallegum gróðurhúsum með alls kyns plöntum, allt frá orkídeum til kjötætuplantna. Íkornarnir í garðinum eru ótrúlega gæfir. Hafið með ykkur hnetur. 2 CCA The Centre for Contemporary Arts Metnaðarfull listamiðstöð með sýningar og fjölbreytta dagskrá. 3 Glasgow School of Art Aðalbygging skólans er ein þekktasta hönnun Charles Renny Mackintosh. Skipulagðar leiðsöguferðir um húsið tvisvar á dag. 4 The Big Top, St. Georges Road Frábær dótabúð með mikið úrval af gamaldags tré- og tinleikföngum. Heimilislegt fjölskyldufyrirtæki; hundar eigendanna liggja iðulega í gangveginum enda annar þeirra með gigt. 5 Kelvingrove Art Gallery & Museum Stærsta safnið í Glasgow og vinsælasti áningarstaður ferðamanna í Skotlandi; við Kelvinpark sem er einn stærsti almenningsgarðurinn í borginni og fullur af lífi á góðum dögum. 8 Ashton Lane Mörg húsanna við þessa litlu göngugötu voru hesthús sem hefur verið breytt í pöbba og veitingastaði. Við enda götunnar er Grosvenor bíóhúsið þar sem hægt er að kaupa sér léttvín og fá miða í sófa sem eru aftast í hverjum sal. 9 Creswell Lane Í framhaldi af Ashton Lane; skemmtilegar búðir með húsbúnað, gjafavöru og barnaföt, tapasbar og nokkur kaffihús. 10 I.J. Mellis, Great Western Road Góð ostabúð með mikið úrval af breskum og frönskum ostum, heimabökuð brauð og ýmislegt góðgæti. Stutt í bæði Botanic Gardens og Kelvingrove Park svo að upplagt er að koma þarna við áður en haldið er í garðferð. 1 Left Bank, Gibson Street Gott og ódýrt bistró, nýverið kosinn besti nýi veitingastaðurinn í bænum. Líka fínn fyrir drykki á kvöldin. 2 Stravaigin, Gibson Street Skoskur staður með fínni matseðil í kjallaranum og ódýrari uppi á barnum. Besta haggisið í Glasgow. 3 Mother India‘s Café, Argyle Street. Frábær indverskur staður. Ekki hægt að panta borð en biðin er alltaf þess virði. 4 Ubiquitous Chip, Ashton Lane Góður skoskur staður í fínni kantinum. Rómantískur aðalsalur en annar minni uppi með einfaldari matseðil. 7 Otago Lane Við þetta litla bakstræti er góð búð með notaðar plötur, fornbókabúð sem sérhæfir sig í gömlum nótnabókum og tehúsið Tchai-Ovna þar sem hægt er að fá yfir 80 tegundir af te. Fjölþjóðlegur grænmetismatseðill. tímum. Fínt að enda svo í mat á Stravaigin 2. Mín Glasgow Sólveig Einarsdóttir, listamaður. Flug og gisting í 3 nætur frá 39.900* kr.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.