Icelandair IS - January 2008 - (Page 4) 4 Vildarpunktar eru punkturinn yfir i-ið Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna Vildarpunktum í hvert skipti sem þeir fljúga með áætlunarflugi Icelandair eða versla hjá samstarfsaðilum félagsins. Félagar geta svo nýtt þessa Vildarpunkta til að greiða fyrir flugferð með Icelandair, hótelgistingu eða bílaleigubíl svo dæmi séu tekin. Til að auðvelda félögum að safna mun fleiri Vildarpunktum er Icelandair í samstarfi við VISA á Íslandi, Vörðu Landsbankans og Heimskort Mastercard en þetta samstarf opnar fólki möguleika á að safna Vildarpunktum á hverjum degi. Hægt er að nota Vildarpunkta á alla áfangastaði Icelandair, á fyrsta flokks hótelum úti um allan heim og á öllum Hertz bílaleigum. Börn frá 2–15 ára aldri fá 50% afslátt af Vildarferðum. Það margborgar sig að vera félagi í Vildarklúbbi Icelandair og byrja að punkta niður næstu ævintýraferð. Það gengur hraðar fyrir sig en margir halda að safna Vildarpunktum og það margborgar sig. Öryggisreglur vegna handfarangurs Farþegum er ekki heimilt að taka með í handfarangri vökva, krem eða úðabrúsa nema umbúðirnar (flöskur, túpur) séu minni en 100 ml (3 oz.) og séu í glærum, lokanlegum plastpoka sem er að hámarki 1 lítri að rúmtaki. Þetta bann nær ekki til lyfja. Til þess er mælst af farþegum að þeir setji allan vökva í innritaðan farangur til að flýta fyrir vopnaleit. Handfarangur og/eða aðrir hlutir, sem farþegar hafa með sér um borð, mega ekki innihalda beitta hluti af nokkurri blaðlengd eða gerð, hvort sem um er að ræða málmhluti eða hluti úr öðru efni, og eins er óheimilt að taka með sér um borð hvers kyns aðra hluti sem nota má sem vopn. Dæmi um slíka hluti eru rakhnífar, naglaþjalir, skæri, dúkahnífar, ísnálar eða annars konar hlutir með beitta egg eða beittan odd. Nálar og sprautur eru undanþegnar þessu banni ef farþeginn hefur einnig í fórum sínum lyf með merkingu sem áprentuð er af fagaðilum þar sem fram kemur nafn framleiðanda eða lyfjafræðileg merking. Sparaðu tíma í sjálfsafgreiðslustöðvum Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru nú sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir innritun. Farþegar geta þannig valið um að spara tíma með því að innrita sig sjálfir og velja sér sitt eigið sæti eða að fá hefðbundna þjónustu við innritunarborð. Þegar farþegi ætlar að innrita sig sjálfur, er greiðslukorti, sem sett var inn sem auðkenni þegar ferð var bókuð, stungið í vélina og Saga Club Gold Saga Club Silver innritun getur hafist. Til þess að nýta sjálfvirka innritun án greiðslukorts er í staðinn hægt að slá inn bókunarnúmerið (er á rafræna miðanum). Einnig er hægt að nota hefðbundna farseðla (pappírsmiða) þar sem segulrönd miðans er lesin í vélinni. Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur, tekur Saga Club starfsmaður við farangri hans á sérstakri hraðleið. Þeir sem eru eingöngu með handfarangur geta haldið beint upp á brottfararsvæðið á 2. hæð flugstöðvarinnar.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.