Icelandair IS - January 2008 - (Page 40) 40 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Dgi-byen Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Mín Köben Hafrún Alda Karlsdóttir, starfsmaður hjá fatahönnuðinum Henrik Vibskov. Flug og gisting í 2 nætur frá 42.900* kr. 1 Louisianasafnið Það er best í heimi að vakna snemma á laugardagsmorgni, skella sér á Louisianasafnið og fá sér „bröns“ í garðinum. 1 Tívolí 2 Það er alltaf gaman að fara í Tívolí! 3 Henrik Vibskov Henrik Vibskov er á Kristalgade og enginn tískuspekúlant má láta þessa búð fram hjá sér fara. Hún er stútfull af dýrindis fatnaði eftir ýmsa hönnuði, t.d. Henrik Vibskov, Stine Goya og Fabriks Interseason. 4 92 Allir sem elska gamaldags föt verða að kíkja í 92. Dásamlega falleg búð með ógrynni af gamaldags fötum. 5 Blomsten á Istegade Skemmtilega hallærislegur bar með djúkboxi og ódýru öli. Ekki fyrir viðkvæma. 9 Hjólatúr um Köben Maður kemst allra sinna ferða á hjóli. Hressandi og umhverfisvænt. 10 Nyhavn Kíktu í Nyhavn og skelltu þér í bátsferð um Kanalinn. 8 Göngutúr í Christianíu Skemmtilegur arkitektúr, kósý kaffihús og skrautleg mannlífsflóra. Um að gera að kíkja í „Stínu“ áður en verður lokað. 7 Granola á Vesturbrú Kaffi, nýpressaður safi eða „smoothie“. Tilvalin hressing um miðjan daginn. 6 Jazz á strætinu Skemmtilegustu jazzarar Kaupmannahafnar koma saman og trylla lýðinn. Mættu snemma svo að þú fáir sæti. 1 Lé Lé á Vesterbrogade Víetnamskur matur með úrvals þjónustu og dýrindis mat. Mæli með að fara mörg saman og panta fullt af smáréttum og skiptast á. 2 Bagel Shop Vesterbro Tilvalið til að grípa með sér heim eftir langan dag. 3 Noma á Islandsbryggju Fyrsta flokks franskur matur fyrir fyrsta flokks vísakort. 4 Du Paul í Tívolí Franskur og notalegur. 5 Loppe í Christaníu Góður matur, hressandi tónlist og skemmtilegt fólk. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.