Icelandair IS - January 2008 - (Page 42) 42 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Thon Hotel Europe Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. 212 styttur Þak eins og fjall þakið snjó Fjörðurinn og fallegu eyjarnar 4 Nýja Óperuhúsið Verður opnað í apríl. Þak byggingarinnar er skáplön úr hvítum marmara sem eru um leið útivistarsvæði. Það er eins og að ganga upp fjall, þakið snjó. Þaðan er flott útsýni yfir hafnarsvæðið. 5 Siglt um Oslóarfjörð Eitt af sérkennum Oslóar er nálægð við fjörðinn og fallegu litlu eyjarnar. Á sumum 1 Grünerlökka Þarna býr mikið af ungu fólki. Þetta er skemmtilegt svæði með kaffihúsum, veitingastöðum, litlum skemmtilegum búðum og galleríum. eyjanna eru líka góðar baðstrendur. Ekki langt fra óperunni er Vippetangenbryggja. Þaðan fara bátar út á Oslóarfjörð til eyjanna i kring. 1 Sudøst, Trondheimsveien 5 Neðst á Grünerlökka. Hægt að sitja úti og virða fyrir sér Akersána sem líður þarna framhjá. Veitingastaðurinn er flottur innanhúss, ágætismatur. Tilvalinn partýstaður þegar líða fer á kvöldið. „Trendy“, meðaldýr veitingastaður. 2 Pascal, Nobels fredssenter, Gamle vestbanen Franskur staður, nútímalegur, meðaldýr á daginn, í dýrari kantinum á kvöldin. Frábærar kökur og góður matur. 3 Ekeberg restauranten, Kongsveien 15 Uppáhaldsveitingastaðurinn minn, á hæð rétt fyrir ofan miðbæinn. Þar er frábært útsýni yfir borgina og fjörðinn. Flott að sitja úti þar sem eru í boði einfaldar veitingar og verðið er í meðallagi. Inni er fyrsta flokks nútímaveitinga- Mín Osló Sóley Karlsdóttir, arkitekt. 2 Ráðhústorg – Aker Brygge Fjörugt mannlíf, uppákomur, veitingastaðir á bryggjunni og margar verslanir. Fyrir fólk með lítil börn mæli ég með útistaðnum Lekter`n sem er á Aker-bryggjunni við hliðina á litlum leikvelli. 3 Vigelandsparken Garður sem ég verð að heimsækja minnst einu sinni á hverju sumri. Yndislegur staður með sínum 212 styttum. Garðurinn er skipulagður af listamanninum sjálfum, Gustaf Vigeland. Við Vigelandsparken er útisundlaug, Frognerbadet. staður í nýuppgerðri byggingu í fúnkísstíl. Frekar dýrt. Flug og gisting í 2 nætur frá 44.900* kr. http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.