Icelandair IS - January 2008 - (Page 44) 44 www.icelandair.is *Á mann í tvíbýli á Thon Hotel Rosenkrantz Innifalið, flug, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Flugáætlun: Flogið tvisvar sinnum í viku, á miðvikudögum og laugardögum, frá 28. maí–6. september. Flugverð aðra leiðina frá 14.720 kr. Mín Bergen Guðfinna Traustadóttir, markaðsstjóri. Flug og gisting í 4 nætur frá 65.900* kr. 1 Ganga um bæjarfjöllin Á Fløyen og Ulriken hitta Björgvinjarbúar vini og kunningja á helgargöngu. Þeir sem gleyma gönguskónum heima skella sér bara í „Fløy-banen“ sem skilar fólki hratt og örugglega upp á topp. Þar er stórfenglegt útsýni yfir bæinn, ótal gönguleiðir og góð útivistarsvæði, kaffihús og leiksvæði fyrir börn. Það er líka hægt að fara upp á Ulriken með kláf. Þar er kaffihús þegar upp er komið. Það er vinsælt sport og frábær náttúruupplifun að ganga frá Ulriken til Fløyen. 2 Verftet og Nordnesparken Það er gaman að rölta um Nordnesparken, njóta útsýnis yfir sjóinn og ganga inn á milli gömlu húsanna. Alveg ómissandi að taka sér góða pásu í Verftinu, gamalli síldarverksmiðju sem hefur fengið nýtt hlutverk sem listasafn, kaffihús, veitingahús og næturklúbbur. Þegar sólin skín jafnast ekkert á við kaldan bjór eða gott hvítvínsglas við sjóinn á Verftinu. 3 Norway in a nutshell Frábær sigling um norsku firðina. Dagsferð sem enginn sér eftir. 4 Bryggen og fiskimarkaðurinn Upplifið ekta bæjarstemningu með því að ganga um gömlu Bryggjuhúsin (Hansabryggen, 1857. Hérna er m.a. að finna söfn, sérverslanir og veitingastaði. Bestu veitingastaðirnir eru To Kokker og Einhjørningen. Gaman er að kaupa poka af ferskum rækjum á Fiskimarkaðnum og snæða þær á næsta bekk. 1 Lille Kaffekompaniet Besta kaffihúsið í bænum. Liggur svolítið afsíðis í næstu götu við Fløybanen; óteljandi tegundir og blöndur af kaffi og te. Prófið líka heita kakóið; það er ótrúlega gott! 2 Kafe Krystall Þessi litli veitingastaður er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Í boði er 5–7 rétta máltíð með sérvöldum vínum, alltaf með ferskasta hráefni sem völ er á. Einstök „gourmetupplifun“. Maður borgar líka vel fyrir. 3 Colonialen Annar frábær veitingastaður. Þetta er líka lítill staður í hjarta bæjarins. Á daginn er þetta kaffihús og sérverslun en á kvöldin fer Colonialen í spari fötin. Dýr en góður. 4 Soho Sérstaklega góðir fiskiréttir og frábært sushi. Staðurinn er frekar hrár en hefur getið sér gott orð fyrir góðan mat og góða stemningu. Upp með kláf og kaffihús á toppnum Síldarverksmiðja sem listasafn, kaffi-, veitingahús og næturklúbbur http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.