Icelandair IS - January 2008 - (Page 45) Vildarpunktar Flug til Bergen og Gautaborgar gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið í sumar á laugardögum, 14. júní–2. ágúst. Flugverð aðra leiðina frá 14.720 kr. 45 Mín Gautaborg Jóhann B. Guðmundsson, knattspyrnumaður. 1 Sjöbaren í Haga Pínulítill og krúttlegur fiskveitingastaður en á sumrin er einnig setið undir tjaldi í bakgarðinum. Fiskisúpan er himnesk! Ekki hægt að fara til Gautaborgar án þess að fara á fiskveitingastað. 3 Slottskogen Stærsti almenningsgarðurinn í Gautaborg. Þangað er frábært að fara í lautarferð á góðum sumardegi. Í garðinum er lítill húsdýragarður og stórt leiksvæði. 4 Skerjagarðurinn Það er gaman að njóta skerjagarðsins á baðstöðunum eða úr bátum sem sigla um Götaána. Mínir uppáhaldsbaðstaðir eru Näset, Smithska udden og Hovås. Það klikkar ekki að fara að baða sig í sjónum, sóla sig pínulítið og grilla svo á klöppunum! 5 Lek & Buslandet Þetta 5000 fermetra leikland er algjör paradís 1 Hagahverfið Gamalt og sjarmerandi hverfi með steinlögðum götum og húsum í gömlum Gautaborgarstíl. Þarna eru einungis sérverslanir, allt frá antíkverslunum upp í tískuverslanir og svo eru heimilisleg og hugguleg kaffihúsin og veitingastaðirnir á hverju strái. Fyrir söguþyrsta er Skansinn þarna steinsnar frá en það er virki frá miðöldum. 2 Söfnin í Gautaborg Söfnin þar eru eins og þau gerast best og má nefna Stadsmuseet (menningarminjasafn), Naturhistoriska museet (náttúrugripasafn), Röhsska museet (tískusafn), Listasafnið á Götaplatsen og Universeum (náttúru- og vísindasafn) sem er í miklu uppáhaldi hjá minni fjölskyldu. 6 Miðbærinn Miðbærinn er vinalegur og sérstaklega þægilegur. Þar er allt það helsta í göngufæri. Á Kungsportsavenyn er fjöldinn alllur af veitingastöðum og kaffihúsum, allt frá McDonalds og upp í Michelin veitingastaðinn Fond. Á Kungs-gatan eru allar helstu tískuverslanakeðjurnar og í Viktoria Passaget og litlu götunum þar í kring eru flottar sérverslanir. fyrir krakkakjána og eldri prakkara. Lek & buslandet er á Hisingen en það er ekkert mál að fara þangað úr miðbænum með strætó og sporvögnum. 2 Heaven 23 Fyrsta flokks veitingastaður á skemmtilegum stað. Hann er á 23. hæð í Hotel Gothia Towers og útsýnið þar er svakalegt! 3 Locatelli Ítalskur veitingastaður í Park hótelinu við Kungsportsavenyn. Ekta ítalskur matur, flottur staður og gott verð. Tilvalið að snæða þar áður en maður skellir sér út á lífið. 4 Tranquilo Svalur suður-amerískur staður. Vel sóttur af ungu fólki og þar myndast skemmtileg stemning með kvöldinu í kringum barinn.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.