Icelandair IS - January 2008 - (Page 46) 46 *Á mann í tvíbýli á Freys Hotel Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Flugáætlun: Flogið daglega allt árið um kring en yfir sumartímann er flogið 8 sinnum í viku. Flugverð aðra leiðina frá 14.720 kr. Vildarpunktar Flug til Stokkhólms gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta VISA og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. 1 Östermalms Saluhall Bygging frá því um 1800, veitingastaðir, barir og litlir verslunarbásar þar sem er seld fersk matvara, heimagert konfekt, grænmeti og ýmislegt annað. Veitingastaðirnir eru litlir og notalegir. 2 Berns Berns er hótel, veitingastaður, bar og skemmtistaður á Östermalm. Það er notalegt að setjast niður á barnum og fá sér einn drykk þegar verslunarleiðangurinn er búinn eða strembinn fundur að baki. Frábær stemmning á kvöldin. 3 Mocebacke Mocebacke er í suðurhluta Stokkhólms, hliðargata frá Götgatan. Mocebacke og Södra Teatern eru 300 ára og hafa lengi verið miðpunktur menningar og músíkunnenda. Lifandi músík, næturklúbbur, matur á kvöldin og sýningar í boði á Mosebacke og í Södra Teatern, Mosebacketorg 3. 4 Skeppsholmen Ég mæli með göngutúr um Skeppsholmen, einstaklega fallega eyju með glæsilegum byggingum í austurhluta Stokkhólms. Þarna eru Moderna Museet, Kungliga Konsthögskolan, Arkitekturmuseet, Östasiatiska museet, Skepps-holmskyrkan og margir góðir veitingastaðir. 5 Designtorget Designtorget er verslun sem er að finna á mörgum stöðum í Stokkhólmi. Nýtískuleg sænsk hönnun, bæði litlir og stórir hlutir. Minn Stokkhólmur Teresa Tryggvadóttir, nemi í Kungliga Tekniska Högskolan. Flug og gisting í 2 nætur frá 43.900* kr. 6 Skansen Skansen er heimsins elsta byggða- og útisafn, uppbyggingin hófst 1891. Einstaklega fallegir garðar og fullt af uppákomum á sumrin og veturna. Það er svo mikið í boði bæði fyrir börn og fullorðna að ég mæli með að skoða heimasíðu Skansen, www.skansen.se 1 Restaurangen, Oxtorgsgatan 14 Veitingastaður með afar sérstakan matseðil. Aðaláherslan er lögð á mismunandi bragðtegundir og hvernig blanda á þeim saman, mat og víni. Gestir geta valið á milli þriggja mismunandi stórra matseðla. 2 Babs, Birger Jarlsgatan 37 7 Medborgarplatsen Medborgarplatsen er torg í suðurhluta bæjarins þar sem allt iðar af lífi á sumrin. 8 Gamla Stan Gamla Stan eða Gamli bærinn er heillandi bæjarhluti, mörg húsin eru frá árunum 1600–1700. Þröngar götur, afslappað umhverfi. Fáið ykkur ís hjá Café Kåkbrinken sem býður 44 tegundir af ís. Gangið niður að Slussen, setjist þar niður og fylgist með bátunum sigla hjá. 9 Street, Hornstull Street er útimarkaður með mismunandi þema hverju sinn; gengið er frá neðanjarðarstöðinni Hornstull. Best er að fara inn á heimasíðuna www.streetinstockholm.se til að sjá hvað er í boði hverju sinni. Við hliðina á bíóinu Zita svo að það er venjulega alltaf fullt fyrir og eftir bíó. Skemmtileg og „kosý“ stemmning á þessum frekar litla veitingastað. 3 Tabbouli Libanesisk bar & kök, Tavastgatan 22 Öðruvísi líbanskur veitingastaður, í suðurhluta Stokkhólms. Til að gera kvöldið sérstakt eftir frábæran mat mæli ég með að setjast út í garð með vatnspípu, teppi, kerti og te. Vissara að panta borð með góðum fyrirvara. 4 Kungsholmen, Norr Mälarstrand, Kajplats 464 Veitingastaður með sjö mismunandi eldhús. Hentar vel fyrir stærri hópa þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. http://www.skansen.se http://www.streetinstockholm.se
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.