Icelandair IS - January 2008 - (Page 49) Vildarpunktar Flug til Helsinki gefur 2.000–9.600 Vildarpunkta. Handhafar Vildarkorta Visa og Icelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 kr. á völdum tímabilum. Flugáætlun: Flogið 4 sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar sinnum í viku, á föstudögum og mánudögum, yfir vetrartímann. Flugverð aðra leiðina frá 16.220 kr. *Á mann í tvíbýli á Radisson SAS Seaside Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. 49 Kirkja höggvin inn í berg Skreppa í gufubað Matseðill með franskt yfirbragð með skandinavísku ívafi Elsti rússneski veitingastaðurinn í Helsinki Mín Helsinki Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari Flug og gisting í 3 nætur frá 49.900* kr. 1 Chez Dominique, Rikhardinkatu 4 Veitingastaður sem hlotið hefur Michelin stjörnur og verið útnefndur einn af 50 bestu veitingastöðum heims. Matseðillinn hefur franskt yfirbragð með skandinavísku ívafi. 2 Bellevue, Rahapjankatu 3 Frægastur og elstur rússneskra veitingastaða í Helsinki. Þarna má finna alls kyns góðgæti, svo sem kavíar og kampavín, hreindýra- og bjarnarsteik. 1 Miðbærinn Helsinki er gömul borg, full af sögulegum byggingum, iðandi af lífi og gaman að fá sér göngutúr. Margar bygginganna voru reistar á 19. og 20. öld og hafa mikinn sjarma. Þessu til mótvægis koma svo nýlegri hús með hinum fræga finnska arkitektúr. 2 Klettakirkjan (Temppeliaukio Church) Kirkjan er höggvin inn í berg með marga kílómetra af koparvír í loftinu. Það er ótrúleg upplifun að skoða kirkjuna á sólríkum degi þegar innviðir kirkjunnar glóa af sólarljósi. 3 Markaðstorgið við höfnina (Kauppatori) Markaðstorgið er stórt og mikið um að vera. Þar má finna úrval af fiski, grænmeti og ávöxtum, fersk jarðarber og annað gómsæti, ásamt handgerðum munum. Það er alltaf stemning að fara á markaðinn. 4 Suomenlinna Frá markaðstorginu er hægt að taka ferju út í eyjuna Suomenlinna. Þar er gamalt virki og rómantísk kirkja þar sem einn kunningi okkar gifti sig fyrir skömmu. Sjarmerandi, stutt bátsferð. 5 Finlandiahúsið Þetta er einn þekktasti tónleikasalur heims. Húsið er hannað af Alvar Aalto og er eitt af því sem ekki má láta framhjá sér fara í Helsinki. Best er auðvitað að drífa sig á tónleika enda er mikið af frábærum tónlistarmönnum í Finnlandi og sterk tónlistarhefð. 6 Tuomiokirkko dómkirkjan Dómkirkjan er ein af fallegustu byggingum borgarinnar og sést nánast hvaðanæva í borginni. Aðkoman að henni er einstaklega falleg. 7 Kaivopuisto Brunnsparken, eins og hann heitir á sænsku, er einn af elstu og best þekktu görðum í Helsinki. Hann er rétt við ströndina og er frábært útivistarsvæði fyrir fjölskylduna. Þarna er góð aðstaða fyrir piknik, sólböð og einnig eru þarna veitingastaðir og kaffihús. 8 Gufuböð Það er ekki hægt að sleppa því að nefna gufuböðin. Eftir skoðanaferðir og skemmtigarða er engu líkt að skreppa í finnskt gufubað og er um fjölmarga staði að velja í Helsinki. 3 Zetor, Mannerheimintie 3–5 Staður í kúreka- og sveitastíl; stundum þekktur undir nafninu traktora-veitingastaðurinn. Innréttingar eru vægast sagt frumlegar. 4 Kaupattori og nágrenni Í kringum höfnina og markaðinn (Kaupattori) er urmull skemmtilegra veitingastaða og kaffihúsa, þeirra á meðal margir af bestu sjávarréttarstöðum borgarinnar.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.