Icelandair IS - January 2008 - (Page 5) 5 Flug og bíll Nýr heimur Icelandair í samstarfi við Hertz býður þér gullið tækifæri til þess að skoða þig um á heillandi sumarslóðum utan við eril stórborganna þar sem frábærir möguleikar eru til útivistar og afþreyingar fyrir börn og fullorðna. Það hefur aldrei verið eins hagsætt að leigja bílaleigubíl og við mælum þess vegna eindregið með flugi og bíl til áfangastaða Icelandair í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Flug og bíll – Evrópa Á fáum stöðum í heiminum opnast ferðamönnum jafn margar, jafn freistandi og jafn fjölbreyttar ökuleiðir og á vestanverðu meginlandi Evrópu. Sólheit veröld Frakklands á strönd Miðjarðarhafs, ævintýraheimur franskra dala og vínræktarhéraða, stórbrotin náttúrfegurð norskra fjarða, seiðmagn Toskana, sögufrægar borgir, Flórens, Feneyjar og Róm, sérstæð fegurð strandbyggðanna meðfram Norðursjó og Eystrasalti, tign Alpafjalla, dulúðugt seiðmagn Svartaskógar, rómantísk töfraveröld Mósel- og Rínardala, kastalar, herragarðar, skemmtigarðar, ysmiklar höfuðborgir, grónar menningarborgir, falleg þorp, gamlar minjar og nútímamenning. Icelandair hefur tekið upp nýtt flugfargjaldakerfi sem gefur farþegum kost á fleiri valmöguleikum, meiri sveigjanleika og þar með betri þjónustu. Sveigjanleiki Nýja flugfargjaldakerfið er byggt upp þannig að kostir hinna einstöku fargjaldaflokka endurspegla verðið sem greitt er fyrir flugfarið. Má orða það þannig á einfaldan hátt að viðskiptavinur fær þá þjónustu sem hann er reiðubúinn að greiða fyrir. Kerfið gefur þannig viðskiptavini kost á að velja sveigjanleika að sínum þörfum og ávinningur hans verður í formi Vildarpunkta, sætavals, sveigjanleika í bókunum og breytingum, o.fl. Takið flug og bíl Látið drauminn rætast. Pantið bílaleigubíl, um leið og þið gangið frá pöntun á flugfari, á www.icelandair.is og bíllinn bíður eftir ykkur þegar þið lendið á áfangastað. Fjórir fargjaldaflokkar Nú býðst viðskiptavinum Icelandair flugfargjald til sérhvers áfangastaðar í fjórum mismunandi fargjaldaflokkum auk sértilboða. Þessir flokkar eru Saga Class (Saga viðskiptafarrými), Economy Flex (almennt farrými – Flex), Economy (almennt farrými) og Best Price (lægsta verð). Um alla þessa fargjaldaflokka gildir að í boði er fargjald aðeins aðra leiðina (one-way). Nánara yfirlit um fargjaldaflokkana má skoða í meðfylgjandi töflu. Flug og bíll – Bandaríkin og Kanada Þjónusta við ferðamenn á eigin bíl er afburðagóð í Bandaríkjunum og Kanada, ótal gistimöguleikar í boði og ökuleiðir út frá áfangastöðum Icelandair opna fólki nýjan heim. Norðausturríki Bandaríkjanna, Nova Scotia og landsvæðin kringum Vötnin fimm á landamærum Kanada og Bandaríkjanna eru rómuð fyrir náttúrufegurð og fjölbreytta aðstöðu og freistandi ferðamöguleika fyrir fólk sem langar til að kynnast annarri hlið á þessum víðlendu ríkjum í vestri. Nýtt og sveigjanlegra flugfargjaldakerfi Bókaðu með góðum fyrirvara og njóttu betri kjara http://www.icelandair.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.