Icelandair IS - January 2008 - (Page 55) Spilaðu úti um allan heim með Icelandair Golfers Icelandair Golfers er klúbbur sem auðveldar kylfingum að leggja stund á íþrótt sína á völlum erlendis. Félagar í Icelandair Golfers njóta eftirtalinna hlunninda: • Félagar greiða ekkert gjald fyrir golfsettið sitt þegar þeir ferðast með Icelandair. • Ýmis tilboð á golfvöllum hér heima og erlendis og hjá samstarfsaðilum. Innifalin í árgjaldi, sem er 5.900 kr., eru eftirtalin fríðindi: • 2.500 Vildarpunktar • 1.500 kr. gjafabréf í Saga Boutique • 100 æfingaboltar í Básum • Gjöf frá Icelandair Golfers • Merkispjald á golfpokann • Félagsskírteini Á www.icelandairgolfers.is eru allar helstu upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa við höndina þegar verið er að skipuleggja golfferð erlendis, umsagnir um klúbba á öllum áfangastöðum Icelandair, upplýsingar um sérferðir á vegum Icelandair og samstarfsaðila í golfferðum o.fl. + Skráðu þig strax á netinu – það margborgar sig. Golfferð til Halifax Verð frá 99.900 kr. á mann í tvíbýli. 15.–19. maí. Golfáhugamenn hafa nú tækifæri til að spila golf í Nova Scotia. Gist verður á hinu glæsilega hóteli, Lord Nelson, sem liggur miðsvæðis í Halifax, og á Digby Pines Golf Resort and Spa í Digby. Leiknir verða tveir hringir á einum besta golfvelli í Nova Scotia, Glen Arbour, ásamt auðvitað Digby Pines-vellinum. Fararstjóri í ferðinni er golfkennari frá Pro Golf, sem verður fólki innan handar með kennslu og leiðsögn meðan á ferðinni stendur. + Allar nánari upplýsingar um ferðina á www.icelandairgolfers.is http://www.icelandairgolfers.is http://www.icelandairgolfers.is
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.