Icelandair IS - January 2008 - (Page 7) 7 Nokkrar góðar ástæður til að ferðast 2008 Saatchi Gallery, London Þetta gallerí, sem er í eigu fyrrum auglýsingamannsins Charles Saatchi (og eiginmanns sjónvarpskokksins Nigellu), er talið eiga einn stærsta þáttinn í bresku listasprengingunni á síðasta áratug. Safnið hefur viðað að sér margt af því markverðasta í breskri samtímalist og Charles Saatchi átti sinn þátt í að uppgötva listamenn eins og Damien Hirst og Tracey Emin. Safnið flytur i nýtt húsnæði við Sloane Square í Chelsea og verður opnað aftur snemma á þessu ári. Það er óhætt að fullyrða að þetta safn verður, líkt og áður, einn af markverðustu áningarstöðum í London fyrir listunnendur og menningarfíkla. Kínverskur matur, Toronto Antica Trattoria della Pesa, Mílanó Víða í heiminum má fá framúrskarandi ítalskan mat en vilji maður fá sígilda rétti, án stæla og „móderníseringar“ er líklega best að fara til Ítalíu og þá er enginn staður betri en Antica Trattoria della Pesa. Staðurinn hefur verið starfræktur síðan 1882 og þar er boðið upp á það helsta í einkennisréttum Lombardiu. Þarna má fá kálfasteik „Milanese“, saffron risotto „Milanese“, osso bucco með polentu og óteljandi aðra rétti. Þessu má síðan skola niður með flösku af Barolo eða Brunello di Montalcino og ekki úr vegi að fá sér Zabaglione í eftirrétt. Innréttingar eru látlausar en yfirbragð staðarins sjarmerandi og sígilt. Þegar maður situr á þessum stað þá er maður kominn til Ítalíu. Aspas-tímabilið, Þýskaland Þjóðverjar verða seint taldir jafn blóðheitir og t.d. nágrannar þeirra á Ítalíu en þegar tekur að vora grípur um sig aspas-æði í Þýskalandi og þýsk hjörtu slá örar í nokkrar vikur. Hvort sem mönnum líkar hvítur aspas eður ei er ekki annað hægt en að hrífast með heimamönnum þegar aspasinn flæðir yfir grænmetismarkaði, matseðlar breytast á veitingastöðum og fólk býður til aspasveislna án minnsta tilefnis. Tribeca Film Festival, New York Robert De Niro hleypti þessari kvikmyndahátíð af stokkunum árið 2002, í uppáhaldshverfinu sínu, og í kjölfar árásanna á NY 11. sept. 2001 hjálpaði hátíðin við að gæða neðri hluta Manhattan lífi á ný. Hátíðin fékk strax góðan hljómgrunn en hefur á undanförnum árum margfaldast að umfangi og býður upp á meira en 1000 kvikmyndasýningar ár hvert. Hátíðin leggur áherslu á óháða kvikmyndagerð, heimildarmyndir og fleira en sýnir þó einnig nýjar stórmyndir og í raun ægir öllu saman í þessari miklu kvikmyndaveislu. Hátíðin stendur frá 23. apríl - 4. maí í ár og þá fer New York í Úrslitakeppnin í NBA, Boston Miðað við frábært gengi Boston Celtics í NBA á fyrri hluta tímabilsins ætlum við að taka áhættu og slá því hreinlega föstu að Boston Celtics verði fremstir meðal jafningja þegar kemur að úrslitakeppninni í vor. Það er því þjóðráð að bóka strax ferð til Boston í júní og tryggja sér góða miða strax. Flestir matargagnrýnendur sem mark er á takandi eru sammála um að besta kínverska matinn utan Kína er að finna í Kanada, sérstaklega í Toronto sem þykir m.a. skjóta New York ref fyrir rass í þessu samhengi. Sérstaklega má minnast á Lai Wah Heen sem er til húsa í Metropolitan hótelinu við Chestnut street en þar má fá óviðjafnanlegt dim sum sem hvað eftir annað er kosið það besta í Norður-Ameríku. Það er tilvalið að safna góðum hópi saman við stórt hringborð og fylla það af kínverskum kræsingum. Nýja Óperan, Osló Eftir að hafa verið að nokkru í skugga nágrannanna í Köben og Stokkhólmi hafa Norðmenn blásið til sóknar á flestum sviðum (með olíugróðann að vopni) og eitt metnaðarfyllsta framtakið er nýja óperuhúsið sem á að opna í vor. Ekkert hefur verið til sparað og reiknað er með að húsið verði eitt helsta menningarsetur á Norðurlöndum auk þess sem það mun setja sterkan svip á borgina. kvikmyndaham. Ólíkt mörgum öðrum hátíðum leggur þessi hátíð mikla áherslu á að ná til almennra borgara og því upplagt að skella sér til „Stóra eplisins“ í vor og ná sér í passa á hátíðina.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.