Icelandair IS - January 2008 - (Page 9) Almennt farrými Saga Class Ný sæti – nýtt afþreyingarkerfi Enn betri sæti, enn meiri þægindi, enn betri þjónusta, enn betri afþreying Á þessu ári verða sett ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi um borð í allar Boeing 757 flugvélar Icelandair. Ný sæti Nýju sætin eru með leðuráklæði, eru léttari, sterkari og taka minna pláss en eldri gerð af sætum svo að farþegar hafa sjálfir meira rými, hvort sem er á almennu farrými eða á Saga Class, og njóta þannig meiri þæginda á flugi. Nýtt afþreyingarkerfi Hver farþegi hefur sinn sérstaka skjá á sætisbakinu fyrir framan sig. Í gegnum skjáinn getur farþegi valið afþreyingarefni af ýmsum toga, allt eftir sínum eigin smekk og áhugamálum. Á boðstólum verður fjölbreytt úrval af nýlegum kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, myndefni ýmis konar, tónlist, skjátextaefni og tölvuleikjum. Farþegi getur einnig fylgst með flugferðinni sjálfri og fengið upplýsingar um flughafnir. Verið velkomin um borð.
For optimal viewing of this digital publication, please enable JavaScript and then refresh the page. If you would like to try to load the digital publication without using Flash Player detection, please click here.